Löndun

Í Hafnarfirði er boðið uppá fyrsta flokks löndunarþjónustu og einnig margvíslega hliðarþjónustu. Í boði er meðal annars losun og lestun á ferskfisk, frystum afurðum úr frystitogurum og frágangi afla hvort sem er í stórflutningaskip, gáma, vörubíla eða í frystigeymslu okkar sem í daglegu tali nefnist Fjarðarfrost.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 525 7910 eða sendið fyrirspurnir á netfangið trawler@eimskip.is.

Fjarðafrost er staðsett á hafnarbakkanum og liggur því nánast við hliðina á skipunum sem landað er úr. Sem dæmi um þá þjónustu sem í boði er þá getum við nefnt:

  • Uppskipun

  • Flokkun

  • Brettun

  • Plöstun

  • Vigtun úrtaks, gáma eða heildarvigtun hverrar pallettu á löggildri vigt

  • Frágangur skips, umbúðarlestun og fleira

  • Fullkomin skoðunaraðstaða með löggildri vigt

  • Prentun af merkingum fyrir vörur, prentað af fullkomnum miðaprentara sem getur prentað út öll letur á hvaða tungumáli sem er

  • Merkingar vöru

  • Stór færanleg löndunarskýli

  • Leigjum lyftara 2 til 8 tonna og einnig gámalyftara ef með þarf

  • Útvegum landkrana

  • Losun á stórflutningaskipum og frystiskipum

  • Vaktað og girt geymslusvæði fyrir veiðarfæri, gáma og stærri einingar

  • Útvegum gáma til leigu fyrir umbúðir og fleira tengt skipum

  • Útvegum allar gerðir af brettum, venjulegum ISO/EUR.

  • Einnig hitaþolnum brettum, sem nauðsynleg eru fyrir útflutning til Ameríku, ef þess þarf.

10