Alheimssamtök Kiwanis heiðra Eimskip

22. janúar 2013 | Fréttir
Eimskipafélag Íslands hlaut á dögunum mestu viðurkenningu sem alþjóða Kiwanishreyfingin veitir fyrir framlag sitt til samfélagslegra málefna. Eimskip hefur ásamt Kiwanishreyfingunni fært öllum 6 ára börnum á Íslandi reiðhjólahjálma að gjöf undanfarin áratug ásamt því að fræða þau um gildi þess að nota hjálmana.Samstarf Eimskips og Kiwanis hófst árið 2004 og hefur fengið gríðarlega athygli hér á landi sem og víðsvegar um heim. Borgirbæir og sveitafélög hafa haft samband við Eimskip og Kiwanis og óskað eftir upplýsingum um verkefnið og framkvæmd þess. Hafa nú um 10 þjóðarinnar notið þessarar gjafar og fræðslu. Staðreyndin er sú að Íslendingar eru sú þjóð sem mest notar hjálma þegar þeir hjóla.Þessi viðurkenning er staðfesting á því að við erum að gera góða hluti fyrir samfélagið. Þrátt fyrir að það sé alltaf gaman að fá viðurkenningar fyrir það sem við gerum þykir okkur samt vænst um þegar við fáum upplýsingar frá foreldrumlögreglu og sjúkraliðum um að hjálmur sem við höfum gefið hafi bjargað mannslífi segir Guðbjörg Ingvarsdóttir verkefnastjóri í kynningar og markaðsdeild Eimskips.Ég vil þakka Eimskip fyrir samstarfið í þessu mikilvæga verkefni og ekki síst öllum þeim kennurum og skólastjórum fyrir framsýni sína og velvilja undanfarin 10 ár segir Dröfn Sveinsdóttirumdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland Færeyjar.Myndatexti Dröfn Sveinsdóttirumdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland Færeyjarog Guðbjörg Ingvarsdóttirverkefnastjóri í kynningar og markaðsdeild Eimskipsmeð viðurkenningarskjöldinn.