Eimskip fjárfestir í þremur frysti og kæliskipum

01. janúar 2012 | Fréttir
Eimskip hefur gengið frá kaupum á þremur frysti og kæliskipum sem byggð voru í Árósum í Danmörku. Eimskip hefur verið með skipin á leigu síðan árið 2005.Skipin þrjú hafa verið mikilvægur hlekkur í frysti og kæliflutningum Eimskipsen þau henta mjög vel fyrir flutninga á frystum sjávarafurðum á Norður Atlantshafi.Með þessari fjárfestingu er Eimskip að efla frekar stoðir og rekstraröryggi siglingakerfisins á Norður Atlantshafi og sérstaklega í þeirri þjónustu sem þau hafa verið í við Noreg.Eimskip tók við rekstri skipanna í lok febrúar mánaðaren skipin ganga undir heitinu Íssysturnarþar sem um systurskip er að ræðasem bera nöfnin Ice StarIce Crystal og Ice Bird.Skipin hafa aðallega verið gerð út frá Noregi og verið í flutningum þaðan inn á Eystrasalt og Rússlanden þau hafa einnig þjónað flutningi á frystum fiskafurðum frá ÍslandiFæreyjum og Nýfundnalandi eða á aðal markaðsvæði Eimskips.Skipin eru hvert um sig 3.625 tonn að stærð93 metrar á lengd og 16 metrar á breidd og þykja mjög hagkvæm í rekstri í samanburði við önnur sambærileg skip á markaðnum. Þau eru útbúin sem frysti og kæliskiperu hliðarlestuð sem flýtir hleðslu þeirra í höfnum og tryggir betri vörumeðferðútbúin krönum og með þrjú lestunardekklyftur og lyftara.Eimskip er með 18 skip í rekstri og eru nú 12 þeirra í eigu félagsinseftir þessa fjárfestingu.