Eimskip hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé fyrirtækisins Sæferða ehf

04. janúar 2015 | Fréttir

Eimskip hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé fyrirtækisins Sæferða ehf. í Stykkishólmi. Rekstur Sæferða er í sjótengdri ferðaþjónustu þar sem félagið rekur skipin Baldur og Særúnu á Breiðafirði. Með kaupum á Sæferðum er Eimskip að stíga ákveðin skref í að styrkja starfsemi sína í sjótengdri ferðaþjónustuen félagið hefur á undanförnum árum rekið ferjuna Herjólf á tímabundnum samningi fyrir Vegagerðina sem þjónar samgöngum og ferðaþjónustu milli lands og Vestmannaeyja.

Á árinu 2014 fjárfestu Sæferðir í nýrri og stærri ferju sem tekur fleiri farþega og bíla og eykur möguleika fyrirtækisins til frekari vaxtar. Heildarvelta fyrirtækisins á árinu 2014 nam 560 milljónum króna sem samsvarar 36 milljónum evra. Kaupin á fyrirtækinu eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og eru gerð með þeim fyrirvara að þau verði samþykkt.

Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips
Ég er mjög sáttur við að hafa náð samningum við eigendur Sæferða um kaup á fyrirtækinuenda um mjög spennandi fyrirtæki að ræða með mikla framtíðarmöguleika er snúa að ferðaþjónustu og samgöngum á vestanverðu landinu. Eimskip mun leggja mikinn metnað í að halda áfram á þeirri braut að efla bæði þjónustu við íbúa svæðisins og ferðaþjónustu í góðu samráði við heimamenn og halda áfram að veita viðskiptavinum félagsins framúrskarandi þjónustu.

Páll Kr. Pálssonstjórnarformaður Sæferða ehf.
Við erum mjög sátt við sölu á fyrirtækinu til Eimskips. Sæferðir munu án nokkurs vafa halda áfram að vaxa og dafna í höndum nýrra eigendaenda hafa fyrirtækin á að skipa öflugum hópi starfsmanna.