Eimskip semur um lækkun á kaupverði skipa í smíðum

26. janúar 2013 | Fréttir
Eimskip semur um lækkun á kaupverði skipa í smíðumSkipin verða afhent á 100 ára afmælisári 2014Á árinu 2011 samdi Eimskip við skipasmíðastöð Rongcheng Shenfei í Kína um smíði á tveim gámaskipum. Skipin eru hvort um sig 875 gámaeiningar að stærðþar af með tengla fyrir 230 frystigáma. Burðargeta skipanna er um 12 þúsund tonnlengd 1407 metrar og breidd 232 metrar.Upphaflega var gert ráð fyrir að skipin yrðu afhent á þessu ári. Nú liggur fyrir samkomulag við skipasmíðastöðina um að afhending á skipunum verði á fyrri hluta árs 2014. Jafnframt því að semja um seinkun á afhendingu hefur félagið samið um rúmlega 20 lækkun á samningsverði skipanna og nemur lækkunin 10 milljónum USD samtals fyrir bæði skipin.Félagið hefur að teknu tilliti til lækkunar á verði skipanna greitt um 26 milljónir USD eða sem nemur um 70 af uppfærðu samningsverði. Fjárfestingin er fjármögnuð með eigin fé og brúarláni frá innlendum banka á byggingartímanum og með langtímafjármögnun frá erlendum banka.Í mars 2013 kynnti félagið umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi sínu. Seinkunin á afhendingu skipana mun ekki hafa áhrif á þær breytingar eða þjónustu við viðskiptavini félagsins. Seinkunin mun þó hafa í för með sér áframhaldandi leigu á skipum lengur en gert hafði verið ráð fyrir.Gylfi SigfússonforstjóriÞað er ánægjulegt að hafa náð fram lækkun á kaupverði skipanna í tengslum við tafir á afhendingu þeirra sem nemur um 12 milljörðum íslenskra króna. Það verður gaman að taka á móti nýju skipunum á 100 ára afmælisári félagsins 2014. Þrátt fyrir tafir á afhendingu skipanna þá verða engar breytingar á nýju siglingakerfi félagsins og mun þetta ekki hafa áhrif á þjónustu félagsins við viðskiptavini. Það er einnig gott að finna fyrir því trausti sem Eimskip hefur áunnið sér frá hendi erlendra fjármálastofnana við fjármögnun verkefnisinsen félagið er með trygga langtímafjármögnun vegna nýsmíðinnar.Um EimskipEimskip rekur 51 starfsstöð í 18 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa um 1.330 starfsmönnum.Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á NorðurAtlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.