Fyrsti hafnarkraninn í Vestmannaeyjum og nýtt leiguskip á Gulu línunni

27. janúar 2016 | Fréttir

Fyrsti hafnarkraninn í Vestmannaeyjum og nýtt leiguskip á Gulu línunni Áreiðanleiki siglingakerfis eykstÁ næstu dögum verða tímamót í flutningum um Vestmannaeyjahöfn þegar Eimskip tekur í notkun Jarlinn sem er sérhæfður hafnarkrani. Staðsetning kranans í Vestmannaeyjum gerir það mögulegt að hafa kranalaus skip á Gulu línunnien slík skip er mun hagkvæmari í rekstri. Eimskip hefur einnig tekið skip á leigu sem þjónar Gulu línunni og mun skipið bera nafnið Bakkafoss. Bakkafoss er skip af sömu gerð og Lagarfoss sem Eimskip smíðaði og fékk afhent árið 2014. Skipið er um 900 gámaeiningar að stærð og tekur því um 180 gámaeiningum meira en Brúarfoss sem mun flytjast yfir á Grænu línuna í þjónustu við NorðurAmeríku. Brúarfoss leysir Selfoss af hólmi sem er í söluferli hjá félaginu.Uppbygging Eimskips í Vestmannaeyjum hefur verið töluverð undanfarið enda um að ræða mikilvæga útflutningshöfn. Ný og endurbætt þjónustuskrifstofa var opnuð nýverið og nú bætist hafnarkraninn við sem og nýtt skip á Gulu línunni eins og áður hefur komið fram. Kraninn gerir það að verkum að öll vinna við skip félagsins verður markvissari og hagkvæmari enda eykst hraði við afgreiðslu skipa og þjónustuöryggið verður meira.Brynjar Viggóssonforstöðumaður Áætlunarflutninga Tilkoma hafnarkranans til Vestmannaeyjasem er ein af okkar mikilvægustu viðkomuhöfnumeykur til muna áreiðanleika siglingakerfis Eimskips. Uppistaðan í flutningum okkar frá Vestmannaeyjum eru sjávarafurðir. Gula línan hefur verið ein mikilvægasta flutningaleið Íslendinga og Færeyinga með ferskan fisk á markaði í Bretlandi og á meginland Evrópu. Áreiðanleiki og hraði skiptir því höfuðmáli og eru þessar breytingar til þess fallnar að mæta kröfum viðskiptavina Eimskips enn frekar.Vel gekk að flytja kranann til Vestmanneyja og er hægt að sjá myndband frá þvíhér. Skipið Paula hélt áfram með hinn kranann til Þórshafnar í Færeyjum og hefur þá Eimskip lokið við það verkefni að kranavæða hafnir félagsins á Gulu línunni.