Gylfi Sigfússon fundar með COSCO í Kína

09. janúar 2015 | Fréttir

Heimsráðstefna um flutninga var haldin í Kína á dögunum. Tækifæri og breytt landslag er framundan í flutningum þar sem aukinn þungi verður í flutningum norðausturleiðina um Íshafið milli Evrópu og Asíu. Á ráðstefnunni átti Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips góðan fund með Li Yunpengforstjóra kínverska skipafélagsins COSCO sem er stærsta skipafélag heims. Eimskip og COSCO hafa átt gott samstarf og kannar nú COSCO möguleika á að hefja fastar áætlunarsiglingar á áðurnefndri leið. Ísland mun hafa mikilvægu hlutverki að gegna í þessari þróun.