Reykjafoss fékk á sig högg í morgun

30. janúar 2011 | Fréttir

Snemma í morgun fékk Reykjafosssem félagið er með í leigu af erlendum aðilaá sig högg rétt fyrir utan höfnina Argentia við Nýfundnaland í Kanada. Við höggið stöðvaðist vél skipsins og var það dregið stutta vegalengd að hafnarbakkanum. Engin hætta er á ferð og ekki vitað um annað tjón á skipinuað svo stödduen að skrúfa þess er löskuð. Farmur skipsins er öruggur og er verið að vinna að því að koma honum í land og áfram til áfangastaðar. Ekki eru nánari fréttir af óhappinu eða tildrögum þess en um leið og Eimskip fær upplýsingar um það verður þeim komið áleiðis. Eins og fram hefur komið er skipið í eigu erlendra aðila og því ekki á valdi Eimskipafélagsins að svara fyrir annað en það sem lýtur að farmi skipsins sem er heill eins og fram hefur komið. Um borð í skipinu er 16 manna alþjóðleg áhöfn þar af þrír íslendingar sem sinna störfum er snúa að öryggi farmsins. Skipstjóri skipsins er ráðinn af eigenda þess og er erlendur. Ekkert amar að áhöfn skipsins. Skipið far á leið sinni frá Norfolk í Ameríku til Íslands þegar óhappið varð.Eimskipafélagið bíður upplýsinga um ástand skipsins og hvort nauðsynlegt verði að fá annað skip til leigu i stað Reykjafoss.Upplýsingar um skipiðReykjafoss er tímaleiguskip hjá Eimskip og er í eigu þýskrar útgerðar. Skipið hefur undanfarin ár verið í þjónustu Eimskips á svokallaðri Ameríku leið milli ÍslandsKanada og Ameríku Um borð er erlend áhöfn ásamt 3 Íslendingum sem eru fulltrúar Eimskips hleðslumaðurrafvirki og hásetiByggingarstaður og ár 1999Stærð 712 gámaeiningarLengd 127 metrarMesta breidd 204 metrarÞyngd 7541 tonnVélbúnaður tegund vélar 1xMAN BW 7S60MCHeildarafl 6.000 KW