Taktu til með Rauða krossinum og Eimskip - styrktu hjálparstarf

23. janúar 2013 | Fréttir

Komdu með gömlu fötin þín skó, handklæði, rúmföt, gluggatjöld og jafnvel stöku sokkana því mikil verðmæti eru fólgin í allri vefnaðarvöru. Allur fatnaður hvort sem hann er slitinn eða heill nýtist Rauða krossinum. Fatasöfnunin er orðin eitt af mikilvægustu fjáröflunarverkefnum Rauða krossins og rennur allur ágóði til hjálparstarfs. Árlega eru um þúsund tonn af fötum og klæði urðuð að óþörfu hérlendis. Öllu þessu væri hægt að koma í endursölu og vinnslu og skapa um leið tekjur fyrir hjálparstarf Rauða krossins. Alls koma um 450 sjálfboðaliðar að fataverkefni Rauða krossins við söfnunflokkunsöluog framleiðslu barnapakka til úthlutunar. Fatnaði er úthlutað til berskjaldaðra um allt landhann er til sölu í Rauðakrossbúðunumog þrisvar á ári er gámur sendur til fátækra barnafjölskyldna í Hvíta Rússlandi. Þetta er í fjórða sinn sem Rauði krossinn og Eimskip ráðast í fatasöfnunarátak að vorlagi með því að setja upp sérstaka söfnunargáma við sundstaði á höfuðborgarsvæðinu. Eimskip er öflugasti stuðningsaðili fatasöfnunarverkefnis Rauða krossins og annast flutninga innanlands án endurgjalds og utan á afar hagstæðum kjörum.