Bretti - meginreglur

Stafla jafnt á bretti

Gott er að staðsetja þyngri kassa neðst og léttari kassa ofar.

Processing Image 1
Processing Image 2

Halda bretti flötu

Reyna að halda bretti flötu svo ekki sé hætta á að kassar detti af toppnum.

Processing Image 1
Processing Image 2

Gæta að hámarkshæð

Hámarkshæð á bretti er 2,2 m en gætið sérstaklega að vandaðri röðun á há bretti.

Processing Image 1
Processing Image 2

Gæta að breidd brettis

Staflið svo hliðarnar séu jafnar og vörur standi ekki út af brettinu.

Processing Image 1
Processing Image 2

Plasta og styrkja

Gætið þess að plasta brettið vel og styrkja ef þörf er á eftir eðli vörunnar.

Processing Image 1
Processing Image 2

Kassar - meginreglur

Hentug stærð af kassa

Miðið við innihald þegar pakkað er, veljið hentuga stærð og notið fylliefni ef þörf krefur. Munið að of mikið fylliefni getur dregið úr styrk flutningseiningarinnar.

Hámarksþyngd einingar

​Ef flutningseining fer yfir 25 kg þarf að koma henni fyrir á bretti og merkja sem þunga einingu.

Vara má ekki standa út

Gætið þess að kassinn passi fyrir vöruna svo að hægt sé að loka honum almennilega og ekkert standi út úr.

Veljið góðan kassa

Gæði kassa þurfa að vera góð. Veljið góða og stífa kassa til að verja vöruna sem best.