Gjaldskrárbreyting 1. júlí 2022

01. júlí 2022 | Akstur innanlands

Þann 1. júlí 2022 hækkar gjaldskrá og önnur þjónustugjöld Eimskips í flutningum innanlands og innanbæjarakstri um 1,78%.

Hækkun þessi er hófleg miðað við aukinn rekstrarkostnað félagsins, m.a. vegna verðlagsbreytinga og launakostnaðar.

 

Frekari upplýsingar eru veittar hjá viðskiptaþjónustu Eimskips innanlands í síma 525-7700.