Breyting á framkvæmdastjórn

10. nóvember 2023 | Fréttir
Breyting á framkvæmdastjórn

Böðvar Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Eimskips í Hollandi, sem tilheyrir Alþjóðasviði félagsins, og mun hann hefja störf þar í næstu viku. Skrifstofa félagsins í Rotterdam er ein stærsta starfstöð Eimskips utan Íslands og ein af lykilhöfnum í víðfemu og sterku flutninganeti félagsins og sinnir fjölbreyttri flutningaþjónustu tengdri siglingakerfi félagsins sem og fjölþættri flutningsmiðlun og tengdri þjónustu.  Hjá Eimskip í Hollandi starfa rúmlega hundrað manns.

Böðvar Örn hefur starfað hjá Eimskip í tæp 20 ár og hefur því víðtæka þekkingu á félaginu sem og flutningageiranum og mun reynsla hans og þekking nýtast vel í að styrkja enn frekar starfsemina í Hollandi og styðja þannig við öflugt þjónustuframboð félagsins. Böðvar er með B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og M.Sc. í flutningahagfræði og flutningaþjónustu frá Erasmus University í Rotterdam.
Böðvar mun verða stjórnendum á Íslandi innan handar næstu vikur þar til ráðið verður í starf framkvæmdastjóra.

Frekari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 8253399 og netfang investors@eimskip.is.