Breyttur opnunartími afgreiðslustaða frá 1. janúar 2020

02. janúar 2020 | Fréttir
Breyttur opnunartími afgreiðslustaða frá 1. janúar 2020

Í kjölfar nýrra kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og VR/LÍ frá í vor munu afgreiðslustaðir Eimskips á höfuðborgarsvæðinu loka kl. 15 á föstudögum frá og með 1. janúar næstkomandi.

Ákveðið var að fara þessa leið þar sem hún þótti skapa gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs starfsfólks en um leið valda sem minnstu raski á starfsemi fyrirtækisins sem getur þá áfram viðhaldið háu þjónustustigi til viðskiptavina sinna.

Ekki hika við hafa samband við þjónustudeild okkar á service@eimskip.com ef frekari spurningar vakna.