Eimskip fyrst fyrirtækja að bjóða upp á starfsþjálfunarnám í skipstjórn

19. júní 2023 | Fréttir
Eimskip fyrst fyrirtækja að bjóða upp á starfsþjálfunarnám í skipstjórn

Eimskip, Tækniskólinn og Thelma Þorbjörg Sigurðardóttir sem útskrifaðist með C réttindi í skipstjórn á dögunum hafa gert með sér samning um starfsþjálfunarnám í skipstjórn samkvæmt STCW-stöðlum (Standard of Training, Certification and Watchkeeping for Seafarers). Eimskip er fyrst fyrirtækja hér á landi til þess að virkja slíkan samning við íslenskan nemanda.

Samningurinn felur í sér starfsþjálfunarnám sem fram fer um borð í skipum Eimskips undir leiðsögn sérþjálfaðra skipstjórnenda. Gert er ráð fyrir að það taki sex til tólf mánaða siglingatíma að ljúka þjálfun samkvæmt þjálfunarhandbók en ef ekki væri fyrir umræddan samning tæki það nemanda allt að tvöfalt lengri tíma að vinna sér inn siglingatíma. Neminn öðlast því nauðsynlega reynslu á mun styttri tíma ásamt því að fá góðan stuðning og fræðslu frá starfsfólki félagsins.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips:
„Það er ánægjulegt vera fyrst íslenskra fyrirtækja til að bjóða upp á starfsnám í skipstjórn sem rímar vel við áherslur félagsins að styðja við þróun og framgöngu starfsfólks og stjórnenda hvort heldur á sjó eða landi. Verkefni eins og þetta er mikilvægt til að gefa skipstjórnarnemum aukin tækifæri og að þeir geti mátað námið sitt við raunverulegar aðstæður. Á sama tíma er frábært að fyrsti starfsnemi verkefnisins sé kona en við viljum gjarnan auka fjölbreytileika um borð í skipunum okkar. Það er frábært að samningurinn sé í höfn og Thelma er vonandi bara fyrsti starfsneminn af mörgum sem munu nema um borð í skipum Eimskips á komandi árum.“

Víglundur Laxdal Sverrisson, skólastjóri Skipstjórnar- og Véltækniskólans:
„Það er enginn vafi að starfsþjálfun sem hluti af námi eykur gæði og yfirfærslu frá bóknámi yfir í verknám. Samningar sem þessir eru því mikið framfaraskref sem opna á nýja möguleika fyrir skipstjórnar- og vélstjórnarnemendur og mun án efa auka vinsældir námsins í framtíðinni.“

Thelma Þorbjörg Sigurðardóttir, skipstjórnarnemi:
„Starfsþjálfunarnámið er gríðarlega stórt tækifæri fyrir fólk eins og mig, með litla eða enga reynslu af sjómennsku. Það er mikill heiður að vera fyrsti neminn sem fer í námið hjá Eimskip, sem getur státað sig af glæsilegasta skipaflota landsins í flutningum. Ég hlakka mikið til að byrja og tengja loks saman bóklega skipstjórnarnámið og starfið um borð undir leiðsögn reynslumikilla skipstjórnarmanna.“

Fremri röð frá vinstri: Thelma Þorbjörg Sigurðardóttir nemi, Heimir Pétursson skipstjóri á Selfossi, J. Snæfríður Einarsdóttir áhafnarstjóri hjá Eimskip, Hildur Ingvarsdóttir skólameistari hjá Tækniskólanum, Unnur Svala Vilhjálmsdóttir viðskiptastjóri.

Aftari röð frá vinstri: Óttar Jóhannsson stýrimaður, Benóny Markan Baldvinsson skipaeftirlitsmaður, Ríkharður Björgvin Ríkharðsson skipaeftirlitsmaður, Víglundur Laxdal Sverrisson skólastjóri Véltækniskólans og Skipstjórnarskólans.

Á efri myndinni má sjá Thelmu Þorbjörgu nema, Snæfríði áhafnarstjóra og Hildi skólameistara við undirskrift.