Eimskip hefur siglingar til Helsingborgar í Svíþjóð

21. janúar 2017 | Fréttir
Eimskip hefur ákveðið að hefja siglingar til Helsingborgar í Svíþjóð frá og með 4. maí 2017. Félagið mun á sama tíma hætta siglingum til Halmstad þar sem það hefur haft viðkomur undanfarin ár. Færslan til Helsingborgar er liður í stöðugri uppbyggingu á siglingakerfi félagsinsen með breytingunni komast viðskiptavinir í enn betri tengingu við aðra markaði og önnur skipafélög. Mikil aukning hefur verið í flutningum á milli Íslands og Svíþjóðartil og frá Færeyjum og í Atlantshafsflutningum til og frá NorðurAmeríku.Skrifstofa félagsins mun jafnframt flytja í næsta nágrenni hafnarinnar til að vera í meiri nálægð við gámavöll og skipakomur. Vöruhúsi verður komið upp nálægt höfninni þar sem lestun og losun gáma fer fram. Síðasta viðkoma rauðu leiðarinnar í Halmstad verður þann 27. apríl næstkomandi.Flutningurinn til Helsingborgar í Svíþjóð er mikilvægt skref til að efla enn frekar þjónustu við viðskiptavini Eimskips. Hafnaryfirvöld hafa fjárfest mikið á undanförnum árum í umgjörð hafnarinnar og hefur höfnin nú yfir að ráða hátæknivæddu hafnarsvæði sem auka mun áreiðanleika þjónustunnar. Uppbyggingin hefur meðal annars leitt til aukinnar geymslugetu á hitastýrðum gámum og hefur öll meðhöndlun og þjónusta þeim tengdum verið efld. Gámahöfnin í Helsingborg er sú fjórða stærsta í Skandinavíu.Gylfi Sigfússon forstjóriFlutningurinn til Helsingborgar skiptir miklu máli fyrir framtíðaruppbyggingu Eimskips á siglingakerfi félagsins. Höfnin í Helsingborg opnar betri möguleika fyrir viðskiptavini okkar bæði hvað varðar inn og útflutning til og frá ÍslandiFæreyjum og NorðurAmeríku. Við fögnum því að hafa náð góðu samkomulagi við hafnaryfirvöld í Helsingborg og tökum fagnandi þeim tækifærum sem opnast við þessa breytingu. Á sama tíma kveðjum við Halmstad eftir gott samstarf undanfarin ár.Niels Valløforstjóri hafnarinnar í HelsingborgVið bjóðum Eimskip velkomið til hafnarinnar í Helsingborg þar sem Eimskip mun tengja okkur betur við Norður Atlantshafið og þá sérstaklega FæreyjarÍsland og NorðurAmeríku. Við efumst ekki um að þetta mun opna mikla möguleika fyrir Svíþjóð og höfnina í Helsingborg.Um EimskipEimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á NorðurAtlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heimmeð þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 60 starfsstöðvar í 20 löndumer með 21 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.700 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands.