Eimskip í Póllandi fær AEO vottorð

24. janúar 2013 | Fréttir
Pólsk tollayfirvöld hafa veitt Eimskip í Póllandi AEO vottun Authorized Economic Operator og er félagið þar með skilgreint sem viðurkenndur rekstraraðili.Meginmarkmið AEO eru að auka öryggi vörukeðja viðurkenndra rekstraraðila og um leið öryggi alþjóðlegu vörukeðjunnarjafnframt því að greiða fyrir viðskiptum.AEO samtvinnar öryggissjónarmið og sjónarmið sem lúta að því að greiða fyrir viðskiptum.Vottunin veitir bæði Eimskip í Póllandi og viðskiptavinum ýmis forréttindi tengd tollafgreiðslu og öll þjónusta henni tengd verður einfaldari og öruggari.Arkadiusz BednarczykCustoms Agency Manager Eimskip PolandPiotr GrzenkowiczManaging Director Eimskip Poland