Eimskip kaupir umboðs- og flutningsmiðlunarstarfsemi Royal Arctic Line á Grænlandi

17. apríl 2023 | Fréttir
Eimskip kaupir umboðs- og flutningsmiðlunarstarfsemi Royal Arctic Line á Grænlandi

Eimskip Greenland A/S hefur keypt umboðs- og flutningsmiðlunarstarfsemi Royal Arctic Line (Royal Arctic Spedition) á Grænlandi. Kaupin munu taka gildi frá og með 1. maí 2023, að uppfylltum fyrirvörum í kaupsamningi.

Eimskip hefur starfrækt flutningsmiðlun í Nuuk á Grænlandi frá árinu 2020. Kaupin styrkja stöðu Eimskips á heimamarkaði sínum í Norður Atlantshafi enn frekar og auka þjónustuframboð félagsins á Grænlandi.

Reksturinn sem Eimskip kaupir samanstendur af flutningsmiðlun og umboðsþjónustu við skip sem hafa viðkomu á Grænlandi svo sem skemmtiferðaskip, togara og fleira. Eimskip hefur byggt upp öfluga umboðsþjónustu á Íslandi og í Færeyjum og tekur nú skref inn á grænlenska markaðinn þar sem umferð skemmtiferðaskipa hefur aukist síðustu ár.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri, Eimskips:
“Kaupin á þessum rekstri eru mikilvægur áfangi fyrir Eimskip á Grænlandi og rökrétt skref í þjónustu Eimskips á norðurslóðum. Grænland er spennandi og vaxandi markaðssvæði sem við höfum trú á til framtíðar. Við erum þess fullviss að þessi kaup muni skapa ný vaxtatækifæri fyrir Eimskip og stuðla að þróun á öflugri og fjölbreyttri starfsemi félagsins á svæðinu.“