Eimskip styrkir stöðu sína í Hollandi með kaupum á Jac Meisner

05. janúar 2015 | Fréttir

Eimskip hefur styrkt stöðu sína í alþjóðlegri flutningsmiðlun með kaupum á hollenska flutningsmiðlunarfyrirtækinu Jac. Meisner Internationaal Expeditiebedrijf B.V.Jac. Meisner var stofnað árið 1959 og er staðsett á hafnarsvæðinu í Rotterdam. Sérþekking fyrirtækisins er á sviði tollskjalagerðarheilbrigðiseftirlits og móttöku og eftirlits á frystum og kældum vörum hvaðanæva úr heiminum til innflutnings til Evrópulanda.

Árleg velta fyrirtækisins nemur um 75 milljónum evra og með áætluðum samlegðaráhrifum við starfsemi Eimskips er gert ráð fyrir að EBITDA hlutfall fyrirtækisins verði á bilinu 89. Tólf starfsmenn starfa hjá Jac. Meisner og mun Dick Weijgertze framkvæmdastjóri starfa áfram sem sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Dick Weijgertzeframkvæmdastjóri Jac. Meisner Flutningsmiðlunargeirinn krefst blandaðra lausna þar sem nýjar flutningalausnir byggja á faglegri reynslu starfsmanna. Með því að sameinast alþjóðlegu flutningsmiðlunarneti Eimskips getum við boðið upp á nýjar flutningalausnir til að tryggja áframhaldandi sterka stöðu Jac. Meisner í Rotterdam með öflugum tengingum fyrirtækisins í Hollandi og öðrum stöðum innan Evrópu.

Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips.
Ég er ánægður með að Jac. Meisner verði nú hluti af Eimskip og hlakka til að vinna með starfsmönnum fyrirtækisins. Kaupin munu styrkja þjónustu við viðskiptavini Eimskips og viðskiptavinir Jac. Meisner munu einnig njóta góðs af alþjóðlegu flutninganeti Eimskips. Kaupin eru liður í stefnu Eimskips um ytri vöxt og munu styrkja enn frekar alþjóðlega frystiflutningsmiðlun félagsins.