Íslandsbanki fjármagnar nýja frystigeymslu Eimskips

09. janúar 2015 | Fréttir
Reykjavík8. apríl 2015. Íslandsbanki og Eimskip hafa undirritað lánssamning að fjárhæð 10 milljónir evra vegna uppbyggingar Eimskips á 10.000 tonna frystigeymslu á athafnasvæði félagsins í Hafnarfirði. Lánið er til 25 ára. Að auki var undirrituð lánalína að fjárhæð 12 milljónir evra til að styðja undir frekari vöxt félagsins.Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi nýrrar frystigeymslu verði tilbúinn til notkunar næsta haust og að verkið verði fullklárað fyrir árslok. Þá er möguleiki að stækka nýju geymsluna enn frekar í áföngum um allt að 14.000 tonn til viðbótarí samræmi við þarfir markaðarins.Þjónusta við sjávarútveginn er ein af grunnstoðum rekstrar Eimskips en með nýrri frystigeymslu er félagið að fylgja eftir vaxandi umsvifum í greininni. Saga Íslandsbanka er einnig samofin sjávarútveginum og er sérfræðiteymi starfandi innan bankans sem þjónustar allar hliðar sjávarútvegsins.Íslandsbanki hefur áður komið að fjármögnun stórra verkefna hjá félaginu og er stærsti einstaki lánveitandi þess.Vilhelm Már Þorsteinssonframkvæmdastjóri FyrirtækjasviðsÍslandsbanki og Eimskip hafa átt farsælt samstarf um margra ára skeið. Við erum afar ánægð með þátttöku okkar í því að styrkja frekari vöxt þessa þjóðhagslega mikilvæga fyrirtækis. Það er okkur sönn ánægja hjá Íslandsbanka að Eimskip hefur valið bankann sem sinn samstarfsaðila í þessu verkefniGylfi Sigfússonforstjóri EimskipsMeð þessari undirritun höfum við gengið frá langtímafjármögnun verkefnisins á hagstæðum kjörum og við fögnum því. Á sama tíma erum við að ljúka við ákveðinn áfanga í uppbyggingu innviða er snúa að sjávarútveginumsem er mikilvæg stoð í rekstri félagsins.