Landeyjahöfn opnar og Herjólfur hefur siglingar þangað á ný

05. janúar 2010 | Fréttir
Dýpkun Landeyjahafnar hefur gengið vel og hefjast siglingar Herjólfs á milli hennar og Vestmannaeyja föstudaginn 5. nóvember klukkan 1700 frá Vestmannaeyjum. Siglt verður til baka klukkan 1830 og síðan önnur um kvöldið eins og áætlun segir til um.Þeir farþegar sem eiga bíla í Þorlákshöfn fá akstur úr Landeyjahöfn til að komast í bílana. Biðjum væntanlega farþega að fylgjast með fréttum og upplýsingum hér á netsíðu Herjólfs.